Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fer fram helgina 17. – 19. mars í Hofi á Akureyri.
Allir félagar eru velkomnir á fundinn. Til þess að gerast landsfundarfulltrúi, og hafa með því atkvæðisrétt á fundinum, þarftu að vera tilnefnd/ur/t til þess af þínu svæðisfélagi. Lista yfir svæðisfélagsformenn má finna hér fyrir neðan skrásetningarformið.
Félagar sem vilja vera landsfundarfulltrúar en hafa ekki svæðisfélagsformann, geta snúið sér til skrifstofu sem vinnur málið áfram með stjórn VG.
Landsfundargjaldið er að þessu sinni 5000 krónur. Innifalið í gjaldinu eru morgun og síðdegishressingar, auk hádegismatar á laugardag og sunnudags. Gjaldið verður innheimt við komuna í Hof.
Formenn svæðisfélaga
- Akureyri og nágrenni: Ólafur Kjartansson
- Árnessýsla: Sigurður Torfi Sigurðsson
- Austurland: Anna Berg Samúelsdóttir
- Borgarbyggð: Guðrún Hildur Þórðardóttir
- Dalir og Reykhólasveit: Halla Steinólfsdóttir
- Grundarfjörður: Ragnar Elbergsson
- Hafnarfjörður: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
- Hornafjörður: Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Kópavogur: Ásta Kristín Guðmundsdóttir
- Mosfellsbær: Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir
- Norðurþing: Jóhannes Sigfússon
- Mið-Suðurland: Guðmundur Ólafsson
- Reykjavík: Elín Björk Jónasdóttir
- Skagafjörður: Bjarni Jónsson
- Strandir: Matthías Lýðsson
- Suðurnes: Hólmfríður Árnadóttir
- Tröllaskagi: Kristján Eldjárn
- Vestfirðir: Sigríður Gísladóttir
- Vestmannaeyjar: Ragnar Óskarsson
- Þingeyjarsýslur: Trausti Aðalsteinsson