Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fer fram helgina 4. til 6. október, í Víkingsheimilinu, Safamýri í Reykjavík.
Allir félagar eru velkomnir á fundinn og allir félagar þurfa sömuleiðis að skrá sig (skráning landsfundarfulltrúa jafngildir ekki skráningu á fundinn)
Landsfundargjald er 5.000 krónur. Veitingar á fundinum eru innifaldar í verðinu. Gjald er innheimt við skráningu í Safamýri.
Landsfundargleðin Dinner við sjó kostar 6.000 krónur. Stuðið verður á Bryggjunni á Granda, laugardagskvöldið 5. október.
Lokað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 2. október